Þá er komið parket á bæði barnaherbergin, sjónvarpsholið og ganginn fram að svalahurð. Hérna eru nokkrar myndir, líka af eldhúsinu. Það var búið að taka svo vel til þar. Borðplatan kom ekki í dag, en ég ætla að hringja á morgun og tékka á stöðunni.

Gangur út á svalir.

Kristján Björn og Kristján Jóhann að leggja parket inni hjá Kristjáni Daníeli!

Annað hornið í Söru herbergi

Hitt hornið. Parketið er meira svona á litinn. Það kemur smá bleikur blær á það á myndunum í ákveðnu ljósi. En í raun er það meira svona.

Ofnskápurinn, hægra megin við hann kemur ísskápurinn.

Séð úr eldhúsinu fram í stofu.

Snyrtilegt eldhús bíður eftir borðplötu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli